28.12.2015 | 11:22
Takk Píratar
Það er gott að þið hafið lokað umræðusvæðinu ykkar, óþarfi að hafa opið spjallsvæði þó þið hafið boðað opna umræðu og allt upp á borðið.
Illdeilur á hópspjalli Pírata | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 96
- Frá upphafi: 888608
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 79
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Pírataspjallið er enn opið og ekkert hefur breyst frá stofnun þess nema að það er orðið að stærsta pólitíska samræðuvettvangi á íslandi og fólk er eins og gengur og gerist ósammála. Stundum þreytist fólk á öðru fólki og skoðunum þess. Spjallið er engu að síður jafn opið öllum í dag og það var daginn sem það var stofnað. Endilega kíktu við. Það er öllum hleypt inn sem sækja um aðgang.
Gissur Örn, 28.12.2015 kl. 16:00
Gissur Örn þó svo að þið hafið óþol fyrir eða eru þreytt á einhverju fólki með aðrar skoðanir réttlætir það ekki það sem hér kemur fram í fréttinni.
Óðinn Þórisson, 28.12.2015 kl. 17:20
Verð eiginlega að játa það Óðinn, en þetta er eitt það dapurlegasta sem frá þér hefur komið. Hef lúmskan grun um, að þú sért að halda í heiðri orð DO, þegar hann sagði, þó ég væri í hjarta mínu sammála, þá barðist ég gegn öllum hugmyndum andstæðinga. Annars þegar skríll veður þarna um svæðið á skítugum skónum, öll eðlileg umræða fokin út í veður og vind, þá segjir fólk sig frá slíku. En ég sé að þér er boðið á spjallborðið á Þjóðarsálini.
Jónas Ómar Snorrason, 29.12.2015 kl. 07:32
Jónas Ómar - þetta er stutt en beitt að mínu mati og sýnir Pírata eins og ég tel þá vera.
Ég mun ekki taka þátt í umræðunni á fyrrv. spjallborði Pírata. Þetta er vissulega áfall fyrir þeirra hugmyndafræði og gegnsæi.
Óðinn Þórisson, 29.12.2015 kl. 17:36
Alls ekkert áfall heldur skref í þá átt að hætta að selja sig bandarísku stórfyrirtæki, og færa sig yfir á eigin vefsvæði, sem yrði gríðarlegt fagnaðarefni fyrir alla alvöru Pírata.
Guðmundur Ásgeirsson, 29.12.2015 kl. 20:16
Guðmundur - þú sérð hlutina eins og þú vilt sjá þá, ég sé þá öðruvísi og mín skoðun þá er þetta áfall fyrir Pírata.
Óðinn Þórisson, 29.12.2015 kl. 21:05
Þessi bloggsíða þín hlýtur þá að vera mikið áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Guðmundur Ásgeirsson, 29.12.2015 kl. 21:24
Ég sé ekki í hverju áfallið ætti að vera fyrir Pírata. Þeir gera tilraun(að ég held), til þess að setja upp spjallborð. Í byrjun var þetta málefnalegt. Síðan koma inn á spjallborðið nettröll, skriðdýr, sem eyðileggja alla umræðu. Það má vera að þér finnist það í lagi Óðinn, en í hjarta þínu held ég ekki. Vandamálið á Íslandi við pólitíska umræðu er það, að klíkan, strákarnir sem ég þekki, er eins og fótboltafélag. Ég held með KR og Liverpool, það er eiginlega alveg sama hversu mikið þeir gera upp á bak, mín félög, sama er með pólitíkina, því miður.
Jónas Ómar Snorrason, 29.12.2015 kl. 21:54
Guðmundur - nú er það þannig að ég blogga ekki fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Óðinn Þórisson, 29.12.2015 kl. 22:26
Jónas Ómar - hef aldrei farið inn á þessa síðu þannig að ég veit ekkert hvað þar fer fram en það að þeir gefist upp á henni er áfall, það er mín skoðun.
Ég styð frelsi einstaklingsins með ábyrð, ég tel að forsenda öflugs verlferðakerfis sé sé öflugt atvinnulíf og ég er kristinnar trúar og ber virðingu fyrir öllum trúarlegum og pólitískum skoðunum annnarra sem fela það ekki sér að þú eigir að drepa einhvern til að uppfylla þíoa trú eða stjórnmálaskoðun.
Það kann að vera að þetta með stuðning við íþróttafélög sé rétt um einhverja, veit ekkert um það , en það a.m.k á ekki við um mig.
Óðinn Þórisson, 29.12.2015 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.