Sjálfstæðisflokkurinn er lýðræðislegur lýðveldisflokkur

SjálfstæðisflokkurinnSjálfstæðisflokkurinn styður að fullu stjórnarskrá íslenska lýðveldisins en hún er æðsta plagg okkur íslendinga.

Það á að vera mjög erfitt að breyta æðsta plaggi lýðveldisins íslands og plagg frá nefnd út í bæ er bara sett fram til að rugla umræðuna að reyna að fá fólk til að halda að það sé til einhver önnur stjórnarskrá.

Það er fulltrúalýðræði á Íslandi og þjóðin kýs sér sína kjörnu fulltrúa.

Þar eru lög landsins samþykkt þar á meðal að breyta einstaka greinum í stjórnarskrá íslenska lýðveldsins.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur og mun alltaf standa vörð í æðsta plagg íslensku þjóðarinnar og standa gegn afsali á auðlyndum þjóðarinnar.

Sjálfstæðisflokkurinn 
stétt með stétt


mbl.is Sýnist stjórnarskrárfrumvarpið sjónarspil Katrínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Ha ? 

"[..]standa gegn afsali á auðlyndum þjóðarinna" 

En einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins (f.v dæmdur Dómsmálaráðherra) telur einmitt að í tilfelli sjávarútvegsauðlindarinnar að útgerðin eigi kvótann og þar með um leið aðganginn að auðlindinni ?

Það er afsal á e-u sem þjóðin gæti hafa átt.

Hefur þú sagt þessum sama þingmanni hver stefna flokksins er í auðlindarmálum ? 

Sigfús Ómar Höskuldsson, 12.6.2021 kl. 19:13

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sigfús Ómar - það er skýr stefna Sjálfstæðisflokksins að auðlyndir þjóðarinnar verði á okkar forræði. Afal á þeim t.d til esb er ekki valkostur.

Óðinn Þórisson, 12.6.2021 kl. 21:38

3 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

En það var ekki það sem ég benti á, þingmaður Sjálfstæðismanna telur að fískveiðheimildirnar séu ekki í eigu þjóðar heldur útgerðarfyrirtækjanna.

Ert þú sammála ?

Það er afsal auðlinda þjóðar í mínum huga.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 12.6.2021 kl. 22:01

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sigfús Ómar - við erum með eitt besta fiskveiðikerfi í heiminum og öll þjóðin nýtur góðs af því. 

Ef Sjálfstæðisflokkurinn fær eitthvað um það ráðið verða auðlyndir íslensku þjóðarinnar áfram á okkar forræði.

Þegar ESB - sinnar tala um aðild íslands að ESB þá er aðeins ESB í boði að við aðögum lög og reglur okkar að ESB og þ.e að afhenda ESB forræði á auðlyndum okkar. 

Óðinn Þórisson, 13.6.2021 kl. 09:08

5 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Bíddu með að ræða ESB og önnur ríki. 

Ræðum garðinn okkar heima fyrst. 

Þinn flokkur neitar að gera nauðsynlegar breytingar á n.v stjórnarskrá sem tryggir að auðlindir Íslands verði ævarandi í eigu þjóðar, ekki einstaklinga eða annarra ríkja.
Þetta liggur fyrir. 

Þú verður að útskýra hvers vegna.

Á meðan sitja á þingi stjórnmálamenn og konur sem telja þann "rétt" sem útgerðarfyrirtæki hafa komið sér upp með því að nýta auðlindina (sjávarútveginn) , sína eign.

Að ríkið muni tapa ef farið verður fyrir dómstóla með mál um slíkt. 

Er það ekki afsal eigna til annarra, frá þjóðinni ? 

(Svo myndi ESB ekki geta gert kröfu á neina einunstu eign á staðbundna storfna í íslenskri landhelgi, aðeins flökkustofna, svo því sé haldið til haga).

Sigfús Ómar Höskuldsson, 13.6.2021 kl. 10:16

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sigfús Ómar - ég er sammála þér að við verðum að ræða og hafa okkar hagsmuni í fyrsta sæti áður en við ræðum hagsmuni aðildarþjóða ESB. 

Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei staðið gegn stjórnarskrárbreytingum en að kúvenda fikveiðistjórnarkerfinukerfinu eða skipta út stjórnarskrá íslenska lýðveldsins er ekki valkostur eins og þinn flokkur vill.


Auðlyndir íslands verða að vera á forræði íslensku þjóðarinnar, það er ekki hægt að samþykkja nett annað. Nýting auðlyndar til lengri til lengri tíma er mikilvæg þannig að þróun í greininni verði sem best.

Óðinn Þórisson, 13.6.2021 kl. 12:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óðinn Þórisson

Höfundur

Óðinn Þórisson
Óðinn Þórisson

Það hefur aukist hér talsvert skoðanakúgun, hvað fólk má segja og hvað ekki. Ef fólk segir brandara fær það yfir sig holskeflu af gagnrýni frá þeim sem telja sig vera í þeirri stöðu að ákveða hvað má segja og hvað ekki. 

Skoðanakúgun hefst nákvmlega svona, fólk hættir að þora að tjá sig vegna hættu frá fólkinu sem telur sig eiga að ákveða hvað má segja og hvað ekki.

Tjáningarfrelsið skiptir okkur öllu máli , við búum enn í lýðræðisríki þar sem fólk á að hafa leyfi til að hafa sínar skoðanir án þess að vera hundelt fyrir það.

Ég vil verja tjáningarfrelsið og réttarríkið sem við búum í. 

Styð heilshugar baráttu Ísraels.

Frjálslyndur Íhaldsmaður sem telur að öflugt atvinnulíf sé forsenda öflugs velferðakerfis.
Lækka skatta og álögur á fólk sem leiðir til aukins hagvaxtar og það gengur betur hjá öllum

 

Spurt er

Eigum við að draga til baka ESB-aðildarumsóknina
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Ísrael stend með
  • Halldór Jónsson
  • Samfylkingin 2006
  • Flagg Ukrainu
  • karen elísabet

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 312
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 216
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband