6.11.2014 | 19:00
Lengst á milli Framsóknar og Samfó í flugvallarmálinu
Stór hluti flugsögunnar er tengd Reykjavíkurflugvelli og hann hefur verið uppeldismiðstöð flugmanna.
Framsókn á allra flokka mest hrós skilið fyrir baráttu flokksins fyrir Reykjavíkurflugvelli og þar með að passa upp á flugsögu okkar íslendinga.
Lokun Reykjavíkurflugvallar eins og Samfylkingin berst nú hvað harðast fyrir er óafturkræf.
Ég á erfitt með að trúa örðu en allir þingmenn Sjálfstæsðifllokkins styðji þessa brýnu tillögu Framsóknar.
Krafan er skýr, skipulagsvaldið fari til alþingis og þjóðin ákveði framhald flugvallarins og er það ekki valkostur að lítill þröngsýnn öfgahópur sem hefur engan skylning á hlutverki hans nái að kúga lokun hans fram.
Alþingi taki yfir Vatnsmýrina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Óðinn Þórisson
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hinn trausti rúni innanríkisráðherra hefur þegar sagt að hann styðji ekki frumvarpið. Loksins sagði þessi manneskja eitthvað af viti. Framsóknarflokkurinn HEFUR EKKER VALD NÉ LEYFI TIL ÞESS AÐ HLUTAST TIL UM SKIPULAGSMÁL Í REYKJAVÍK. Þessi flokkur er mesta plága síðari tíma Íslandssögunnar, jafnvel verri en sjálfstæðisflokkurinn og þá er mikið sagt.
Óskar, 6.11.2014 kl. 19:07
Óskar - ég hef reynt að verja HBK í hennar erfiðu málum en því miiður get ég ekki gert það lengur.
Framsókn er að leggja til að skipulagsvaldið varðandi vatnsmýrina verði tekið yfir til alþingis, gera verður ráð fyrir því að fyrir utan HBK þá styði allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins tillöguna.
Það kæmi mér ekki á óvart ef HBK fengi mótframboð á næsta landsfundi
Óðinn Þórisson, 6.11.2014 kl. 20:26
"Ég á erfitt með að trúa öðru en allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins styðji þessa brýnu tillögu Framsóknar"
"ég hef reynt að verja HBK í hennar erfiðu málum en því miður get ég ekki gert það lengur"
Sæll Óðinn.
Ég yrði aftur á móti mjög hissa ef hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins ætti ekki einhverra fjárhagslegra hagsmuna að gæta í þessu sóðalega lóðabraski öllu.
P.S.
Trúir þú Óðinn að listar með nöfnum þeirra hundruða Íslendinga sem eigi (illa fengið, eða hreinlega mútu-) fé í skattaskjólum verði keyptir og opinberaðir, líkt og gert er við árlega við heiðarlegar launatekjur okkar hinna?
Verður þá ekki sömuleiðis erfitt að halda áfram að verja BB o/co ef honum auðnast að finna leið til að kæfa og tæta þann ljóta lista þjófa og landráðamanna?
Jónatan Karlsson, 7.11.2014 kl. 23:54
Jónatan - flugvöllurinn skiptir gríðarlega miklu máli, hann er öryggismál, samgöngumál og atvinnumál, þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem styðja ekki töllögu Framsóknar mun ég ekki styðja lengur - það er alveg klárt mál.
Ég get ekki stutt þingmenn hvar í flokki sem þeir standa sem vilja taka reykjavíkurflugvölll af landbyggðarfólki og þar með LSH.
Þetta virðist vera eitthvað lóðabrast sem er þarna í gangi.
Óðinn Þórisson, 8.11.2014 kl. 09:59
Góðan daginn, Óðinn
Ég má til með að bæta gráu ofan á svart og benda þér og öðrum sönnum sjálfstæðismönnum á skoðun leiðtoga flokksins í Reykjavík, sem hann lét í ljós í fréttatíma sjónvarps að ákvörðun meirihlutans í borginni bæri að virða, því aðalatriðið væri að sveitafélagið réði þessu.
Fer ekki að verða tímabært að þessar liðleskjur í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kasti grímunum og gangi til liðs við Dag og raunverulega félaga sína áður en þau ganga af hugsjóninni dauðri, eða er það kannski helsta markmið þeirra?
Jónatan Karlsson, 8.11.2014 kl. 11:02
Jónatan - í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna talaði ég skýrt gegn áframhaldandi daðri borgarfulltrúa flokksins við vinstra - liðið.
Þetta viðtal við Halldór í gærkvöldi sýndi að borgarstjornarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur ekkert lært frá síðasta kjörtímabili.
Þetta byrjaði allt með stefnu HBK að allir ættu að vera vinir og vinna saman, sú stefna skilaði flokknum síðast 5 borgarfulltrúum og nú 4 borgarfulltrúum.
HBK horfir á flugvallarmálið eins og hún sé enn borgarfulltrúi en ekki innanríkisráðhera og þetta er annar stjórnarlokkurinn sem leggur fram þessa brýnu tillögu.
Það er alveg ljóst að ef þetta mál verður samþykkt eru ráðherradagar HBK taldir.
Áslaug Friðriksdóttir sagði í útvarpsviðtali á útvarpi sögu fyrir borgarstjórnarkosningarnar að Sjálfstæðisflokkurinn væri í raun sósíal - demókrataflokkur og ef þeð er þá er flokkurinn dauðadæmdur sem valkostur fyrir hægri menn.
Óðinn Þórisson, 8.11.2014 kl. 12:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.